spot_img
HomeFréttirValur endaði tímabilið á sigri

Valur endaði tímabilið á sigri

Deildarkeppni Dominos deildar kvenna lauk í kvöld með fjórum leikjum. Að Hlíðarenda voru það heimakonur í Val sem unnu Skallagrím nokkuð þægilega eftir að hafa keyrt yfir gestina í þriðja leikhluta.

 

Gangur leiksins:

Valskonur mættu sterkari til leiks í byrjun leiks en gestirnir voru aldrei langt á eftir. Skallagrímur leiddi um miðjan fyrri hálfleik eftir fínt áhlaup þar sem vörnin hertist og opin skot fóru að detta. Valsarar virtust einfaldlega vera ferskari og mættu þeim í lok hálfleiksins og fóru með 42-38 forystu í hálfleikinn. 

 

Skallagrímskonur urðu svo hreinlega undir í seinni hálfleik. Valskonur nýttu orkuna sína í að mæta þreyttum Skallagrímskonum sem voru bersýnilega þreyttar og ekki tilbúnar í átök. Munurinn var mestur 62-46 fyrir heimakonum sem spiluðu frábærlega í þriðja leikhluta. 

 

Skallagrímur reyndi margt til að komast aftur inní leikinn og náði muninum minnst niður í fimm stig í lokin en Valur átti alltaf svör og unnu góðan sigur að lokum 83-71. 

 

Hetjan

Hallveig Jónsdóttir var gríðarlega mikilvæg fyrir Valskonur í kvöld. Hún hitti mjög vel og endaði með 18 stig og 7 fráköst. Körfurnar hennar komu á mikilvægum tímapunktum og virist Hallveig vera ákveðin að kveðja þetta tímabil með sigri. Mia Lloyd sem hefur verið með bestu leikmönnnum íslandsmótsins var að vanda frábær með 15 stig og 13 fráköst. 

 

Kjarninn

Valsarar hafa lokið leik á þessu tímabili og vilja sjálfsagt ekki dvelja of lengi við það. Meiðsli hafa hrúgast upp og stöðugleikinn ekki verið neinn á tímabilinu. Liðið hefur samt átt nokkrar góðar frammistöður sem vel er hægt að byggja á fyrir næsta tímabil. Ari Gunnarsson mun ekki stjórna liðinu og er eftirsjá af skemmtilegum karakter af hliðarlínunni. Nýr þjálfari fær það verkefni að ná upp stöðugleika í liðinu en hann tekur við góðu búi. 

 

Erfitt er að sjá Skallagrím ná að gera stóra hluti í úrslitakeppninni eftir frammistöðuna síðustu vikur. Liðið tapaði þrem af síðustu fjórum leikjum og mikil meiðsli og þreyta virðast vera að plaga þunnskipaðan hóp. Varnarleikur liðsins í dag var mjög slakur heilt yfir og tókst Völsurum að fara illa með hana ítrekað. Nú eru nokkrir dagar í að úrslitakeppnin hefst og mikilvægt fyrir Borgnesinga að ná að tjalda til öllu fyrir það. Aftur á móti, úrslitakeppnin býður Skallagríms í fyrsta skipti í sögu kvennadeildar félagsins og það sem nýliðar. Frábærri deildarkeppni er lokið fyrir liðið og geta leikmenn gengið frá henni með bakið beint. 

 

Tölfræði leiksins

Myndasafn (Torfi Magnússon)

Myndasafn (Ólafur Þór Jónsson)

 

 

Fréttir
- Auglýsing -