spot_img
HomeFréttirValssigur fyrir vestan

Valssigur fyrir vestan

 

Vestri og Valur mættust í 1. deild karla á Ísafirði í kvöld. Vestramenn höfðu að litlu að keppa, gátu hvorki endað ofar né neðar en 6. sæti í deildinni, á meðan Valsarar áttu veika von um að hífa sig upp í 2. sæti deildarinnar.

 

 

Eftir nokkuð jafna byrjun þá virtist Valur vera að stinga af undir miðjan fyrri hálfleik, enda komnir með 13 stiga forustu eftir um 12 mínútna leik. Vestri skaut sig þó aftur inn í leikinn og skildu einungis 6 stig liðin af í hálfleik, 43-46. Fór þar mestan fyrir Vestra fyrirliðinn Nökkvi Harðarson sem var kominn með 11 stig og 9 fráköst í hléinu.

 

Seinni hálfleikur spilaðist keimlíkt hinum fyrri, Valur komst ítrekað 10+ stigum yfir en heimamenn klóruðu alltaf í bakkann og minnkuðu muninn.

 

Þegar þrjár og hálf mínútu voru gestirnir 17 stigum yfir og leit allt út fyrir öruggan sigur þeirra. Ísfirðingar náðu þó einu loka áhlaupi og skoruðu 10 ósvöruð stig í röð og náðu muninum í 7 stig, 84-91. Lengra komust þeir þó ekki og Austin Magnús Bracy og Birgir Björn Pétursson kláruðu leikinn af vítalínunni, lokastaðan 88-98.

 

Lengi lifir í gömlum…

Hinn 35 ára gamli Pance Ilievski, sem tók fram skóna aftur í lok janúar, átti sinn besta leik í vetur og setti niður 6 þrista í 10 tilraunum en hann endaði stigahæstur Ísfirðinga með 18 stig.

 

Maður leiksins

Ísfirðingurinn Birgir Björn Pétursson var sínum gömlu félögum erfiður en hann endaði stiga- og frákastahæstur Valsmanna með 18 stig og 13 fráköst, þar af mörg mikilvæg á lokamínútu leiksins.

 

Tölfræði leiks

 

Umfjöllun / Sturla Stígsson

Fréttir
- Auglýsing -