Í kvöld hefst Valsmótið í Vodafonehöllinni í Reykjavík en Valsmenn hafa ákveðið að endurvekja þetta vinsæla mót sem hér á árum áður gat sér gott orð sem hraðmót. Í kvöld hefst fjörið kl. 18:30 þegar silfurlið Þórs úr Þorlákshöfn mætir Fjölni kl. 18:30.
Strax að þeim leik loknum mætast heimamenn í Val og nýliðar Augnabliks í 1. deild. Sá leikur hefst kl. 20:30.