spot_img
HomeFréttirValsmenn mun sterkari á lokasprettinum

Valsmenn mun sterkari á lokasprettinum

Hamarsmenn tóku á móti Val í hörkuleik í frystikistunni í Hveragerði í gær, leikurinn hófst seinna en venjulega eða kl 20:15. Það virtist eitthvað fara illa í heimamenn en Valsmenn mættu áræðnir og skoruðu þeir fyrstu 7 stig leiksins, Þá fyrst fóru Hamarsmenn að spila körfuknattleik líkt og þeir vilja vera kenndir við, að minnsta kosti í sókninni, en vörnin var þó ekki að ná að halda og því héldu Valsmenn yfirhöndinni allan leikhlutan sem fór 25-28.
 
 
Valsmenn héldu áfram að vera sterkari í öðrum leikhluta og juku þeir jafnt og þétt við forskot sitt og skyndilega voru þeir komnir með 11 stiga mun 34-45. En þá settu Hamarsmenn í annan gír og náðu góðu áhlaupi 13-2 og jöfnuðu þeir leikinn 47-47, Valsmenn áttu þó loka atkvæðið í fyrri hálfleik, staðan 49-52.
 
Þriðji leikhlutinn var síðan ógurlega spennandi þar sem bæði lið sýndu oft á köflum flotta kafla, enn það voru gestirnir sem fyrr sem kláruðu leikhlutanna sterkt og munurinn kominn uppí átta stig 74-82 fyrir loka fjórðunginn.
 
Sá leikhluti bauð þó aldrei uppá neina spennu þar sem strákarnir frá Hlíðarenda reyndust mun sterkari og sigldu þeir öruggum tveimur stigum í hús 91-110, Allt sauð þó uppúr í lokinn þar sem hver tæknivillan fékk að fjúka á varamannabekk Hamars. 
 
Atkvæða mestur í sigurliðinu var fyrrum leikmaður Hamars Danero Thomas sem skoraði 27 stig og bætti við 11 stigum, Þorbergur átti frábæran leik einnig með 24 stig og 5 fráköst, og Illugi kom með myndarlega tvennu 19 stig og 10 fráköst, Örn Sigurðarson átti flottan leik fyrir Hamar 26 stig, 6 fráköst og 4 varin skot, Næstur kom Þorsteinn með 16 stig og 17 fráköst og svo var Julian Nelson með 18 stig og 6 fráköst
 

Umfjöllun/ ÍÖG
 
Fréttir
- Auglýsing -