Eftir að Keflvíkingar höfðu gert sér góða ferð að Hlíðarenda og stolið heimavallarréttinum í einvígi sínu gegn Valsmönnum náðu þeir ekki að fylgja því kviðhöggi eftir í kvöld þegar liðin mættust í Keflavík. Eftir nokkuð skemmtilegan leik í Keflavík þar sem að gestirnir í rauðu leiddu að megninu til varð niðurstaða kvöldsins 87:82 Valssigur og eingvígið því hnífjafnt.
Leikurinn hófst á gríðarlega háu “tempói” þegar bæði lið settu niður hvern þristinn á fætur öðrum. Staðan orðin 10:8 eftir tæplega tvær mínútur af körfuknattleik og stuðningsmenn beggja liða nudduð saman höndum í von um að þetta forsmekkur að kvöldinu. Valsmenn héldu svo sannarlega áfram að skora og settu heil 33 stig í fyrsta fjórðung gegn 26 stigum Keflvíkinga. Til að gera ansi langa sögu stutta þá hélst þessi munur +/-4 stig nánast allt til loka leiks. Keflvíkingar hótuðu vissulega á loka sprettinum í fjórða leikhluta að koma sér í forystu aftur í leiknum. En heilladísirnar ætluðu einfaldlega ekki að leyfa þetta í kvöld. Jafnvel galopin skot þeirra vildu hreinlega ekki detta niður.
Það verður hinsvegar ekki tekið af Valsmönnum að þeir léku mjög svo arðbæran og einfaldan körfuknattleik þegar virkilega á þurfti. Vendipunktur leiksins má segja að hafi komið þegar um 1:30 mín voru eftir og Kristófer Acox blakaði sóknar frákasti til Kára Jónssonar sem skellti niður þrist. Venjulega er þessi stoðsending á hinn vegin en þarna kom Kári sínum mönnum í 8 stiga forystu. Keflvíkingar reyndu eins og þeir gátu að naga þetta niður og stela sigrinum en Valsmenn verðugir sigurvegarar þetta kvöldið.
Af einstaklingum þá virtust máttarstólpar þeirra Valsmanna hafa verið að hlaupa boðhlaup í leiknum þar sem þeir réttu kefli á milli sín og sáu um sóknarleikinn. Frank Booker Jr. var frábær í fyrri hálfleik þegar hann tók fyrsta sprettinn. Callum Lawson tók svo við keflinu og setti grimmt niður stig á sínum gamla heimavelli. Á ögur stundu á lokakaflanum tók svo Keyshawn Woods við keflinu og setti niður mikilvæg stig og áttu Keflvíkingar í mesta basli með hann. Það var svo Kári Jónsson sem “hljóp” síðasta spölin með keflið með áður nefndum þrist og svo keyrsla á körfuna þegar vörn Keflvíkinga pressaði hart.
Merkilega staðreynd við þetta tap heimamanna að þeir taka heilum 12 skotum fleiri en Valsmenn í leiknum, en sem fyrr segir þá voru galopin skot ekki að falla með þeim. Erfitt er að setja heiðurstign á einstaka leikmenn/mann Keflvíkinga í kvöld. Remy vissulega skilaði 20 stigum og var þeirra stigahæstur en yfirleitt sem og í kvöld var það Hilmar Pétursson sem skilar mestu þegar litið er beggja vegna vallarins. Gríðarlega öflugur leikmaður og í raun lykilmaður í því að Keflvíkingar nái árangri í sínum leik.
Staðan 1:1 í einvíginu og næsti leikur er á laugardaginn nk. kl 19:30 í N1-höllinni að Hlíðarenda.
Myndir: Víkurfréttir www.vf.is




