spot_img
HomeFréttirValsmenn enn ósigraðir eftir sigur á Hamar

Valsmenn enn ósigraðir eftir sigur á Hamar

Valsmenn áttu meira eftir á tankinum í lok leiks og sigldu heim nokkuð öruggum sigri á Hamar að Hlíaðrenda í kvöld, 63-83.  Valsmenn leiddu svo gott sem allan leikinn en Hamar var þó aldrei langt frá þeim og komu marg oft til baka í leiknum.  Það voru hins vegar heimamenn sem áttu meira á tankinum undir lok leiksins og keyrðu hreinlega yfir gestina á seinustu mínútum leiksins.  Illugi Auðunsson átti flottan leik fyrir Val með 25 stig og 11 fráköst en næstu menn voru Illugi Steingrímsson, Jamie Stewart og Benedikt Blöndal, allir með 14 stig.  Hjá Hamar var Samuel Prescott stigahæstur með 25 stig en næstu menn voru Örn Sigurðarson með 18 stig og Oddur Ólafsson með 7 stig.  

Leikurinn fór mjög rólega af stað og bæði lið voru að brenna af svo gott sem öllum skotunum.  Fyrstu stig leiksins skoraði Samuel Prescott fyrir Hamar eftir 3 mínútur af leik.  Valsmenn tóku þá örlítið við sér og skoruðu 13 stig gegn næstu tveimur stigum gestana.  Leikhlutinn einkenndist af slökum sóknarleik og þá sérstaklega hjá Hamar sem tókst aðeins að skora 6 stig í fyrsta leikhluta gegn 16 stigum Vals.  

 

Annar leikhluti var aðeins líflegri og Hamar klóraði í bakkan með fyrstu sex stigum leikhlutans sem Valsmenn höfðu ekki náð að svara þegar Valsmenn tóku leikhlé eftir tæpar 4 mínútur af leikhlutanum, 16-12.  Fyrstu stig Valsmanna komu svo stuttu seinna og leikurin var farinn að jafnast töluvert út.  Sigurður Orri Hafþórsson kom Hamar svo aftur inní leikinn með þrist þegar leikhlutinn var um það bil hálfnaður, 20-18. Valsmenn svöruðu þá fyrir sig og settu næstu 5 stig áður en Hallgrímur Brynjólfsson tók leikhlé fyrir Hamar, 25-18. Valsmenn náðu þá mest 11 stiga forskoti í stöðunni 31-20 þangað til Hamar tók aftur við sér.  Gestirnir kláruðu svo fyrri hálfleik nokkuð vel og settu seinustu 7 stig hálfleiksins, 31-27.  

 

Stigahæstur í hálfleik í liði Vals var Illugi Auðunsson með 9 stig og 7 fráköst en næstu menn voru Illugi Steingrímsson með 8 stig og Jamie Stewart með 7 stig og 4 stoðsendingar.  Samuel Prescott var lang stigahæstu í liði Hamars í hálfleik með 16 stig en næstu menn voru Örn Sigurðarson með 6 stig og 7 fráköst og Sigurður Orri Hafþórsson með 3 stig. 

 

Þorsteinn Gunnlaugsson setti fyrsti stig seinni háflleiks eftir signature spin move-ið og minnkaði muninn niður í 2 stig sem Illugi Auðunsson svaraði um hæl, 33-29.  Valsmenn tóku nokkra góða kafla og náðu forskotinu upp í 7 stig þegar leikhlutinn var rúmlega hálfnaður, 46-39. Hamar kom hins vegar alltaf sterkir til baka og héldu sér innan seilingar fjarlægðar.  Valsmenn tóku svo virkilega góðan kafla þegar þriðji leikhluti var klárast og settu 6 stig í röð þangað til Hallgrímur tók leikhlé fyrri Hamar, 55-45.  Valsmenn héldu 8 stiga forskoti þegar flautað var til loka leikhlutans, 57-49. 

 

Hamar mætti af miklum krafti í fjórða leikhluta, Oddur Ólafsson stal fyrstu sendingu leikhlutans og skilaði niður tveimur stigum sem kveikti vel í sínu liði.  Munurinn var aftur kominn niður í 4 stig þegar tvær mínútur voru liðnar af leikhlutanum og seigla gestana að skila þeim miklu.  Ágúst Björgvinsson tók leikhlé fyrir val stuttu seinna í stöðunni 59-55.  Hamar hafði náð muninum niður í 2 stig, 59-57, þegar Benedikt Blöndal setti 6 stig í röð með stolnum bolta inná milli.  Hamar náði aftur að minnka forskotið niður í 4 stig í stöðunni 67-63 áður en Illugi Steingrímsson setti þrist og náði forskotinu aftur upp í 7 stig.  Valsmenn nýttu sér það run og keyrðu yfir gestina á lokamínútum leiksins.  Þegar ein mínúta var eftir hafði Oddur Ólafsson fengið á sig tæknivillu fyrir kjaftbrúk og forskot Valsmanna komið upp 12 stig, 75-63.  Valsmenn nýttu sér meðbyrinn og kláruðu leikinn með stæl, Hamar skoraði ekki stig seinustu 2 mínútur leiksins og Valur jók forskotið upp í 20 stig, 83-63. 

 

Tölfræði leiksins 

Umfjöllun: [email protected]
Myndasafn: Hörður Tulinius 

Fréttir
- Auglýsing -