Meistaraflokkur Vals verður án Bergþóru Holton Tómasdóttur fyrir áramót á næsta tímabil í Dominos deild kvenna. Hún mun flytja erlendis en verður með liðinu eftir áramót. Þetta staðfesti Bergþóra í samtali við Karfan.is í dag.
Bergþóra er 23. ára bakvörður sem er uppalin hjá Fjölni en fór til KR árið 2013 og hefur leikið með Valskonum síðustu tvö tímabil. Hún var með 12 stig og tvö fráköst að meðaltali í 26 leikjum á síðasta tímabili en Valur endaði í fimmta sæti Dominos deildarinnar.
Valskonur hafa fengið fimm leikmenn í sumar. Liðið endurheimti Ragnheiði Benónísdóttur frá Skallagrím eftir árs veru þar. Ásta Júlía Grímsdóttir og Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir koma frá KR og Kristín María Matthíasdóttir kom frá Fjölni. Auk þess mun Lexi Petersen spila en liðið hefur einungis misst Miu Lloyd frá síðasta tímabili.
Bergþóra á að baki þrjá landsleiki fyrir Ísland og því ljóst að Valskonur munu sakna hennar fyrir áramót. Dominos deild kvenna hefst þann 4. október er Valur mætir nýliðum Breiðablik.




