HomeBónus deildinBónus deild karlaValsarar jöfnuðu metin fyrir fullu húsi

Valsarar jöfnuðu metin fyrir fullu húsi

Valur og Grindavík mættust í hörkuleik í undanúrslitum Bónus deildar karla þar sem Valur hafði betur með 79 stigum gegn 72. Leikurinn var hnífjafn framan af og staðan var jöfn í hálfleik, en Valur náði undirtökunum í seinni hálfleiknum. Callum Lawson og Kári Jónsson voru atkvæðamestir í liði Vals með 16 stig hvor, en hjá Grindavík dró Deandre Kane vagninn með 22 stig og 12 fráköst.

Með þessum sigri Vals er staðan í einvíginu orðin 1-1 og ljóst að spennan fer vaxandi. Það lið sem fyrst vinnur þrjá leiki tryggir sér sæti í úrslitum deildarinnar. Mikill áhugi var á leiknum og mættu 1633 áhorfendur til að fylgjast með slagnum sem lofar góðu fyrir framhaldið í seríunni.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -