spot_img
HomeFréttirValencia með annan sigur í spænsku deildinni

Valencia með annan sigur í spænsku deildinni

Jón Arnór Stefánsson og félagar hans í Valencia sigruðu í dag lið Fiat Joventut með 76 stigum gegn 69.  Valencia leiddi í hálfleik með 6 stigum, 34:28.  Jón Arnór spilaði aðeins tæpar 8 mínútur í leiknum og skroaði ekkert á þeim tíma, tók eitt skot og það geigaði.  Stigahæstur hjá Valencia var Svartfellingurinn Bojan Dubljevic með 20 stig. Valencia er því búið að sigra báða leiki sína í deildinni líkt og tvö önnur lið og líkast til á eftir að bæta í þann hóp þar sem leikir eru nú í gangi. 

Fréttir
- Auglýsing -