HomeFréttirVærlöse í 5. sæti dönsku deildarinnar eftir sigur í Íslendingaslag

Værlöse í 5. sæti dönsku deildarinnar eftir sigur í Íslendingaslag

Um helgina fór fram Íslendingaslagur í dönsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik þar sem áttust við Aabyhoj og Værlöse BBK. Axel Kárason og gestirnir frá Værlöse höfðu nauman 70-73 sigur í leiknum og eru um þessar mundir í 5. sæti með 20 stig.
Axel lék hverja einustu mínútu í leiknum fyrir Værlöse og gerði 16 stig, tók 4 fráköst og gaf 1 stoðsendingu. Ólafur J. Sigurðsson lék í tæpar 10 mínútur í liði Aabyhoj en náði ekki að skora og Guðni Heiðar Valentínusson kom ekki við sögu í leiknum.
 
Axel Kárason er orðinn háll sem áll í dönskunni og hafði orðið fyrir sínum mönnum í Værlöse eftir leikinn
  

Fréttir
- Auglýsing -