Ægir Þór Steinarsson leikmaður Burgos á Spáni og íslenska landsliðsins var gestur sportþáttarins á FM Suðurlandi þessa vikuna. Hann talaði um ferilinn, sambúðina með Ragga Nat, íslenska boltann og Eurobasket svo eitthvað sé nefnt.
Viðtal Gests Einarssonar frá Hæli við Ægir má finna í heild sinni hér að neðan. Sportþátturinn er í loftinu öll mánudagskvöld þar sem rætt er um íþróttir og meðal annars körfubolta. Þáttur sem engin íþróttaáhugamaður ætti að missa af.




