Breiðablik mun eins og undanfarin ár standa fyrir utandeild í körfuknattleik. Öllum er heimil þátttaka sem ekki leika í Iceland Express deild karla og kvenna eða í 1. deild karla.
Öllum liðum verða tryggðir 5 leikir í deildinni en keppnisfyrirkomulag verður ákveðið þegar ljóst er hversu mikill fjöldi liða tekur þátt.
-Spilað er 2x 16mín. gangandi klukka. Síðustu 2. mín í seinni hálfleik er klukkan stoppuð eftir KKÍ reglum (útaf, villur, skoraða körfu o.sfrv.)
-1x leikhlé er í seinni hálfleik.
-Þegar réttur er á 2x eða 3x vítaskotum þá er eingöngu tekið eitt skot sem gildir þá 2 eða 3 stig eins og við á.
-Engin skotklukka. Dómara er þó heimilt að hefja upphátt niðurtalningu úr 10sek telji hann að um tilraun til leiktafar sé að ræða.
-Skiptingar eru leyfðar í hvert sinn sem bolti er úr leik en klukkan ekki stöðvuð meðan skipting fer fram.
-12 leikmenn á skýrslu í hverjum leik.
Leikir fara fram í Smáranum og verður leikið á föstudagskvöldum í vetur. Hægt verður að fylgjast með niðurröðun og úrslitum leikja á Breidablik.is.
Þátttökugjald er kr. 45.000 pr. lið. Hvert lið fær 5 leiki með dómara og ritaraborði.
Þátttökutilkynningum þar sem fram kemur nafn liðs, nafn, heimilisfang, gsm sími og netfang forsvarsmanns, skal skila til Péturs Hrafns Sigurðssonar, [email protected] fyrir 21. október.
Mynd: Þrymur hefur unnið Utandeildina tvö ár í röð. – Hafrún Pálsdóttir



