Fimm leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt þar sem Utah Jazz fengu skell í Staples Center er liðið heimsóti LA Lakers. Lokatölur voru 120-91 Lakers í vil þar sem Kobe Bryant var stigahæstur með 21 stig og 6 fráköst. Andrew Bynum bætti við 19 stigum og 11 fráköstum og Spánverjin Pau Gasol kastaði 20 stigum í púkkið. Hjá Jazz var Deron Williams með 17 stig og 8 stoðsendingar. Ferð Jazz á útivelli var ekki til fjár því þeir töpuðu öllum fimm útileikjunum og fá nú séns á því að reyna að snúa blaðinu við á heimavelli í næsta leik.
Önnur úrslit næturinnar:
Washington 109-120 Denver
Boston 112-95 Cleveland (18 tapleikir í röð)
Dallas 112-105 LA Clippers
Sacramento 89-94 Charlotte
Mynd/ Bryant og félagar áttu ekki í vandræðum með Utah í nótt.




