Um helgina er komið að fyrri helgi Úrvalsbúða KKÍ en búðirnar fara fram laugardaginn 5. og sunnudaginn 6. júní. Úrvalshópar eru undanfari yngri landsliða Íslands þar sem unglingalandsliðsþjálfarar ásamt gestaþjálfurum stjórna æfingum og fara yfir öll helstu tækniatriði íþróttarinnar.
Úrvalsbúðir eru fyrir krakka á aldrinum 11-13 ára. Í ár eru það drengir og stúlkur sem eru fædd 1999, 1998 og 1997.
Dagskrá búðanna 5. – 6. júní er eftirfarandi:
Dalhús, Grafarvogi – Strákar
1999 • 09:00 – 11:00
1998 • 11:30 – 13:30
1997 • 14:30 – 16:30
Ingi Þór Steinþórsson er búðarstjóri hjá strákunum en honum til aðstoðar verða Bárður Eyþórsson, Finnur Stefánsson, Pétur Guðmundsson, Snorri Örn Arnaldsson og unglingalandsliðsmennirnir Ægir Þór Steinarsson og Tómas Tómasson
Ásvellir, Hafnarfirði – Stelpur
1999 • 09:00 – 11:00
1998 • 11:30 – 13:30
1997 • 14:30 – 16:30
Margrét Sturlaugsdóttir er búðarstjóri hjá stelpunum og henni til aðstoðar verða Falur Harðarson, Erla Reynisdóttir, Hrafnhildur Sonja Kristjánsdóttir, Jón Halldór Eðvaldsson og unglingalandsliðsstúlkurnar Rannveig Ólafsdóttir og Auður Ólafsdóttir
Seinni helgi úrvalsbúða verður 14. – 15. ágúst.
Ljósmynd/Tomasz Kolodziejski



