HomeFréttirÚrslitin í 1. deild hefjast á föstudag

Úrslitin í 1. deild hefjast á föstudag

Úrslitaviðureign nágrannanna í Skallagrím og ÍA um laust sæti í úrvalsdeild karla á næstu leiktíð hefst næsta föstudag í Borgarnesi. Skallagrímur hefur heimaleikjaréttinn í seríunni en þeir luku keppni í 2. sæti 1. deildar.
Það lið sem fyrr vinnur tvo leiki í úrslitaseríunni fer með KFÍ upp í úrvalsdeildina en föstudaginn 23. mars mætast liðin í Borgarnesi, annar leikurinn fer fram sunnudaginn 25. mars að Jaðarsbökkum á Akranesi og ef til oddaleiks kemur mætast liðin þriðjudaginn 27. mars í Borgarnesi.
 
Á leið sinni í úrslit hafði ÍA 2-0 sigur gegn Hamri og Skallagrímur lagði Hött 2-0.
  
Fréttir
- Auglýsing -