HomeNeðri deildir1. deild karlaÚrslitastund á Selfossi í kvöld

Úrslitastund á Selfossi í kvöld

Í kvöld fer fram fjórði leikurinn í spennandi undanúrslitaeinvígi Selfoss og Sindra í 1. deild karla. Sindri leiðir einvígið 2–1 og getur með sigri í kvöld tryggt sér sæti í úrslitum. Selfyssingar eru hins vegar upp við vegg á heimavelli og verða að knýja fram sigur til að tryggja sér oddaleik og halda voninni um úrslitasæti á lífi.

Sigurvegarinn úr þessu einvígi mætir liði Breiðabliks í úrslitum um sæti í efstu deild. Blikar sýndu mikla yfirburði í sínu einvígi þar sem þeir sópuðu liði KV í sumarfrí með sannfærandi 3–0 sigri. Það er því mikið undir á Selfossi í kvöld, þar sem hart verður barist um að fá að kljást við Kópavogsliðið í lokaúrslitunum.

Leikur dagsins

Fyrsta deild karla – Undanúrslit

Selfoss Sindri – kl. 19:15

Fréttir
- Auglýsing -