Karlalandslið Íslands í körfubolta mætir Bretlandi í Manchester klukkan 14:00 í dag. Um algjöran úrslitaleik er að ræða í undankeppni HM 2027, þar sem Ísland verður að vinna til þess að komast áfram í næsta fasa undankeppninnar. Tap þýðir að liðið er úr leik.
Ein breyting hefur verið gerð á íslenska hópnum fyrir leikinn. Kári Jónsson getur ekki beitt sér vegna meiðsla sem hann hlaut í leiknum gegn Ítalíu heima fyrir helgi. Í hans stað kemur Sigurður Pétursson inn í hópinn.
Leikurinn verður í beinni útsendingu RÚV.
Hópurinn sem mætir Bretum í dag er því skipaður eftirtöldum leikmönnum:
Almar Orri Atlason
Bjarni Guðmann Jónsson
Bragi Guðmundsson
Elvar Már Friðriksson
Hilmar Smári Henningsson
Jón Axel Guðmundsson
Kristinn Pálsson
Martin Hermannsson
Sigurður Pétursson
Styrmir Snær Þrastarson
Tryggvi Snær Hlinason
Þórir Guðmundur Þorbjarnarson




