Í kvöld, föstudaginn 27. mars, rúllar úrslitakeppni 1. deildar karla af stað með þremur spennandi viðureignum. Eftir harða baráttu í vetur er nú komið að stóru stundinni þar sem leikið er um laust sæti í efstu deild karla, Bónus deildinni.
Eins og kunnugt er tryggði Höttur sér sigur í deildinni og fór því beint upp um deild. Önnur lið þurfa hins vegar að fara í gegnum úrslitakeppni til að fylgja þeim eftir.
Leikir kvöldsins
Allir leikirnir hefjast kl. 19:15 og mætast eftirtalin lið í fyrstu rimmu átta liða úrslitanna:
- Sindri – Snæfell (Ice Lagoon höllin)
- Haukar – Selfoss (Ólafssalur)
- Fjölnir – KV (Dalhús)





