12:00
{mosimage}
Næstkomandi föstudag 20. mars hefst úrslitakeppni 1. deildar karla. Þá mætast Valur og KFÍ annars vegar og Haukar og Fjölnir hinsvegar. Liðin keppast að því að fylgja Hamri upp í Iceland Express-deildina.
Það lið sem fyrr vinnur tvo leiki fer áfram í úrslit. Í úrslitunum þarf einnig að vinna tvo leiki.
Dagskrá:
Valur · KFÍ
1. leikur – 20. mars kl. 20:00 – Vodafone-höllin
2. leikur – 22. mars kl. 19:15 – Ísafjörður
3. leikur – 24. mars kl. 20.00 – Vodafone-höllin · (Oddaleikur ef þarf)
Haukar · Fjölnir
1. leikur – 20. mars kl. 19:15 – Ásvelir
2. leikur – 22. mars kl. 19:15 – Íþróttamiðstöðin Grafarvogi
3. leikur – 24. mars kl. 19:15 – Ásvellir · (Oddaleikur ef þarf)
Stefnt er að því að lokaúrslitin hefjist svo föstudaginn 27. mars.
Mynd: Torfi Magnússon