HomeNeðri deildir1. deild kvennaÚrslitaeinvígi 1. deildar kvenna: Baráttan um sæti í Bónus deildinni hefst í...

Úrslitaeinvígi 1. deildar kvenna: Baráttan um sæti í Bónus deildinni hefst í kvöld

Sæti í úrvalsdeild kvenna á næsta tímabili er í húfi þegar úrslitakeppni 1. deildar hefst í kvöld, föstudaginn 10. apríl.

Það eru lið Hamars/Þórs og Fjölnis sem mætast í einvígi um lausa sætið, en það lið sem vinnur þrjá leiki tryggir sér sæti meðal þeirra bestu.

Fyrsti leikur fer fram í kvöld í Hveragerði klukkan 19:15.

Dagskrá úrslitanna

Hér að neðan má sjá tímasetningar allra leikja í einvíginu. Athugið að leikir 4 og 5 fara aðeins fram ef staðan krefst þess.

Leikur 1: Föstudagur 10. apríl kl. 19:15

Hamar/Þór – Fjölnir í Hveragerði

Leikur 2: Þriðjudagur 14. apríl kl. 19:15

Fjölnir – Hamar/Þór í Dalhúsum

Leikur 3: Laugardagur 18. apríl kl. 18:00

Hamar/Þór – Fjölnir í Icelandic Glacial höllinni

Leikur 4 (ef með þarf): Miðvikudagur 22. apríl kl. 19:15

Fjölnir – Hamar/Þór í Dalhúsum

Leikur 5 (ef með þarf): Laugardagur 25. apríl kl. 18:00

Hamar/Þór – Fjölnir í Hveragerði

Smelltu hér til að fylgjast með leikjadagskrá úrslitanna í heild sinni.

Fréttir
- Auglýsing -