Á morgun laugardag eru úrslit Sumardeildarinnar 2011, en Sumardeildin er götuboltakeppni KKÍ sem fram hefur farið í sumar. Leikið verður á Sport-Court vellinum í Garðabæ en það er nýr og glæsilegur útikörfuboltavöllur sem er staðsettur við útiíþróttasvæðið við Ásgarð gegnt Flataskóla.
Dagskráin er eftirfarandi:
Leikjaplan:
13.00 Viðureign 1: Team DC – Ravens
13.00 Viðureign 2: Þristurinn – Lituanica
13.30 Viðureign 3: Óvissumenn – Jailblazers
13.30 Viðureign 4: Gullni Örninn – Glímufélagið
14.00 Viðureign 5: Undanúrslit sigurvegarar úr leik 1 og 2
14.00 Viðureign 6: Undanúrslit sigurvegarar úr leik 3 og 4
14.30 Þriggja stiga keppni
14.45 Viðureign 7: Úrslitaleikur
Þriggja-stiga keppni:
Eins og í fyrra verður þriggja-stiga keppni og mun hvert félag tefla fram einum leikmanni. Fimm skotstaðir verða og hver skotstaður með þrjá bolta. Boltarnir gefa eitt stig nema síðasti sem mun gefa 2 stig. Mest verður hægt að fá 20 stig.
Verðlaun verða veitt fyrir sigur í deildinni og fyrir þriggjastigakeppnina.
Nánar um mótið á heimasíðu KKÍ – www.kki.is



