spot_img
HomeFréttirÚrslit: Valur tryggði sér úrslitaleik gegn Grindavík

Úrslit: Valur tryggði sér úrslitaleik gegn Grindavík

 Keflavík, Snæfell og Valur skiluðu í dag sigrum í sínum leikjum og síðastnefnda liðið þeim mikilvægasta.  Valskonur þurftu sigur gegn Haukum í dag til að eygja möguleika á sæti í úrslitakeppninni.  Valskonur svöruðu því kalli með sigri, 81:68 og koma því til með að spila á miðvikudag kemur úrslitaleik gegn Grindavík í Grindavík um síðasta sætið í úrslitakeppni kvenna.   Grindavíkurstúlkur annan leikinn í röð að spila illa og biðu afhroð í Keflavík þar sem heimastúlkurnar fengu loks að hefna fyrir bikarúrslitaleikinn.  
 
Snæfell fengu Hamar í heimsókn og höfðu ekki mikið fyrir því að leggja blómastúlkurnar, 88:53. 
 
Fréttir
- Auglýsing -