spot_img
HomeBónusdeildinBónusdeild kvennaÚrslit: Valur með torsóttan sigur í Ólafssal

Úrslit: Valur með torsóttan sigur í Ólafssal

Heil umferð fór fram í Dominos deild kvenna í dag. Fjórir flottir leikir voru leiknir og var þetta önnur umferðin á fjórum dögum en leikið er mjög þétt þessar vikurnar.

Í Ólafssal tóku heimakonur í Haukum á móti hinu liði séra Friðriks, Val. Valsarar byrjuðu mun betur en varnarlega voru Haukar ekki tilbúnar í slaginn. Haukarnir gáfu aldrei eftir og náðu góðu áhlaupi í seinni hálfleik og úr varð spennandi leikur. Valur náði að berja frá sér á lokamínútunum og uppskáru tíu stiga sigur að lokum.

KR er enn án sigurs eftir tap gegn Blikum sem spyrna sér þar með af botninum. Keflavík vann öruggan sigur á Fjölni og Skallagrímur vann Vesturlandsslaginn.

Staðan í Dominos deild kvenna

Úrslit dagsins:

KR 58-73 Breiðablik

Haukar 64-74 Valur

Keflavík 72-60 Fjölnir

Skallagrímur 85-80 Snæfell

Fréttir
- Auglýsing -