spot_img
HomeFréttirÚrslit: Valur fellur og Snæfell í úrslitakeppnina í fyrsta sinn!

Úrslit: Valur fellur og Snæfell í úrslitakeppnina í fyrsta sinn!

 
Þá er deildarkeppni Iceland Express-deildar kvenna lokið í ár og ljóst hvaða lið fara í úrslit. Í kvöld fóru fram fjórir leikir og unnust allir leikirnir á útivöllum í kvöld og allir nokkuð örugglega.
KR vann Grindavík 45:66
Hamar vann Keflavík 85:101
Haukar unnu Njarðvík 61:94
Snæfell vann Val 58:83
 
Það er því ljóst að KR og Hamar sitja hjá á meðan Keflavík mætir Snæfelli og Grindavík mætir Haukum í umspili um að leika í undan úrslitunum ásamt KR og Hamri. Það lið sem fyrr vinnur tvo leiki fer áfram.
 
Fyrstu leikir í umspili fara fram á laugardaginn næstkomandi 6. mars.
 
Lokastaðan í deildinni 2009-2010
1. KR • 36 stig
2. Hamar • 24 stig
3. Keflavík 24 stig
4. Grindavík 24 stig
—————–
5. Haukar • 24 stig
6. Snæfell • 12 stig
7. Njarðvík • 12 stig
8. Valur • 6 stig
 
Það er því hlutskipti Valskvenna að falla niður í 1. deild í ár en það var þegar vitað fyrir þessa umferð.
 
Frétt af www.kki.is  
Ljósmynd/ [email protected] Vonbrigði í Vodafonehöllinni
Fréttir
- Auglýsing -