Bæði karla- og kvennalið KR eru komin í bikarúrslit Poweradebikarkeppninnar en skemmtilegur tvíhöfði fór fram í DHL-Höllinni í dag. Fyrst varð kvennalið félagsins fyrst allra liða til að vinna Hamar þetta tímabilið og karlaliðið var rétt í þessu að leggja Tindastól 81-69 í miklum baráttuleik.
Marcus Walker var magnaður í KR liðinu í dag með 16 stig og maðurinn lék óaðfinnanlega vörn. Hjá gestunum að norðan var Hayward Fain með 32 stig.
Nánar um leikinn síðar…
Mynd/ Marcus Walker var frábær í KR liðinu í dag





