HomeFréttirÚrslit: Þórsarar með lag á Grindvíkingum - komnir í 2. sætið

Úrslit: Þórsarar með lag á Grindvíkingum – komnir í 2. sætið

Í kvöld lauk nítjándu umferð í Iceland Express deild karla þar sem nýliðar Þórs úr Þorlákshöfn lögðu Grindavík öðru sinni í deildarkeppninni en Þór er eina liðið sem unnið hefur deildarmeistara Grindavíkur á Íslandsmótinu. Lokatölur í Þorlákshöfn voru 79-69 Þórsurum í vil en þetta var jafnframt fimmti deildarsigur Þórs í röð og batt hann enda á tíu leikja sigurgöngu Grindvíkinga í deildinni! Með sigrinum í kvöld fara Þórsarar upp í 2. sæti deildarinnar.
Úrslit kvöldsins:
 
Snæfell 89-86 Fjölnir
Marquis Hall gerði 26 stig fyrir Snæfell og Quincy Hankins-Cole bætti við 18 stigum og 13 fráköstum. Hjá Fjölni var Calvin O´Neal með 31 stig.
 
Þór Þorlákshöfn 79-69 Grindavík
Darrin Govens gerði 27 stig, tók 7 fráköst og gaf 5 stoðsendingar hjá Þór og Blago Janev bætti við 20 stigum og 10 fráköstum. Hjá Grindavík var J´Nathan Bullock atkvæðamestur með 18 stig og 7 fráköst.
 
Stjarnan 98-102 ÍR
Robert Jarvis fór mikinn í liði ÍR með 36 stig, 5 fráköst og 4 stoðsendingar. Rodney Alexander bætti við 25 stigum og 11 fráköstum. Hjá Stjörnunni var Renato Lindmets með 27 stig og 10 fráköst og Keith Cothran bætti við 20 stigum.
 
Heildarskor leikjanna í úrvalsdeild karla í kvöld:
 
Snæfell-Fjölnir 89-86 (24-14, 23-20, 20-22, 22-30)
 
Snæfell: Marquis Sheldon Hall 26/7 stoðsendingar, Quincy Hankins-Cole 18/13 fráköst/6 stoðsendingar, Jón Ólafur Jónsson 17/7 fráköst, Sveinn Arnar Davidsson 15, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 6/6 fráköst, Hafþór Ingi Gunnarsson 4, Ólafur Torfason 2, Óskar Hjartarson 1, Magnús Ingi Hjálmarsson 0, Þorbergur Helgi Sæþórsson 0, Snjólfur Björnsson 0.
 
Fjölnir: Calvin O’Neal 31/4 fráköst, Nathan Walkup 16/9 fráköst, Arnþór Freyr Guðmundsson 15, Hjalti Vilhjálmsson 11/5 fráköst, Jón Sverrisson 10/9 fráköst, Björgvin Hafþór Ríkharðsson 3, Tómas Daði Bessason 0, Haukur Sverrisson 0, Gústav Davíðsson 0, Gunnar Ólafsson 0, Daði Berg Grétarsson 0, Trausti Eiríksson 0.
 
Þór Þorlákshöfn-Grindavík 79-69 (13-16, 23-20, 23-12, 20-21)
 
Þór Þorlákshöfn: Darrin Govens 27/7 fráköst/5 stoðsendingar, Blagoj Janev 20/10 fráköst, Guðmundur Jónsson 14/4 fráköst, Matthew James Hairston 7/10 fráköst/7 stoðsendingar, Baldur Þór Ragnarsson 4, Grétar Ingi Erlendsson 4, Darri Hilmarsson 2, Þorsteinn Már Ragnarsson 1, Emil Karel Einarsson 0, Erlendur Ágúst Stefánsson 0, Sveinn Hafsteinn Gunnarsson 0.
 
Grindavík: J’Nathan Bullock 18/7 fráköst, Giordan Watson 17/4 fráköst, Jóhann Árni Ólafsson 7/4 fráköst, Sigurður Gunnar Þorsteinsson 7/6 fráköst, Björn Steinar Brynjólfsson 6, Ryan Pettinella 5/4 fráköst, Páll Axel Vilbergsson 3, Ólafur Ólafsson 2, Ómar Örn Sævarsson 2, Þorleifur Ólafsson 2, Þorsteinn Finnbogason 0, Ármann Vilbergsson 0.
 
Stjarnan-ÍR 98-102 (18-22, 25-26, 15-23, 40-31)
 
Stjarnan: Renato Lindmets 27/10 fráköst, Keith Cothran 20/5 stolnir, Justin Shouse 17/11 stoðsendingar, Jovan Zdravevski 13, Fannar Freyr Helgason 12/13 fráköst, Dagur Kár Jónsson 5, Sigurjón Örn Lárusson 2, Guðjón Lárusson 2, Sigurbjörn Ottó Björnsson 0, Tómas Þórður Hilmarsson 0, Aron Kárason 0, Magnús Bjarki Guðmundsson 0.
 
ÍR: Robert Jarvis 36/5 fráköst, Rodney Alexander 25/11 fráköst, Nemanja Sovic 13, Eiríkur Önundarson 11/5 stoðsendingar, Kristinn Jónasson 6/3 varin skot, Hjalti Friðriksson 6/4 fráköst, Níels Dungal 5/4 fráköst, Ragnar Bragason 0, Húni Húnfjörð 0, Ellert Arnarson 0, Þorvaldur Hauksson 0/5 fráköst, Friðrik Hjálmarsson 0.
Fréttir
- Auglýsing -