Heil umferð fór fram í Iceland Express deild kvenna í kvöld og nú eru aðeins fimm umferðir eftir af deildarkeppninni. Í Stykkishólmi var spennuslagur þar sem Snæfell vann tveggja stiga sigur á Haukum 77-75 og því eru þrjú lið jöfn í deildinni með 24 stig og baráttan um sæti í úrslitakeppninni því í algleymingi.
Úrslit kvöldsins:
Snæfell 77-75 Haukar
Jence Ann Rhoads fékk skot á lokasekúndu leiksins þar sem hún gat jafnað en það geigaði. Haukar voru afar ósáttir við þessa síðustu sókn og töldu brotið á Rhoads en ekkert var dæmt og Snæfell fagnaði sigri.
Fjölnir 67-79 Valur
Keflavík 73-61 Hamar
Njarðvík 78-71 KR
Staðan í deldinni
Keflavík – 38 stig
Njarðvík – 34 stig
Haukar – 24 stig
KR – 24 stig
Snæfell – 24 stig
Valur – 18 stig
Hamar – 12 stig
Fjölnir – 10 stig



