spot_img
HomeFréttirÚrslit: Sjáðu ruglaða sigurkörfu Karl Anthony Towns gegn Grizzlies

Úrslit: Sjáðu ruglaða sigurkörfu Karl Anthony Towns gegn Grizzlies

Átta leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt.

Í Target höllinni í Minneapolis lögðu heimamenn í Minnesota Timberwolves lið Memphis Grizzlies í framlengdum leik, 97-99. Leikur sem seint verður talinn áferðarfallegur, en liðin skoruðu samtals 10 stig á 5 mínútum framlengingarinnar. Að lokum var það sigurkarfa Karl Anthony Towns sem að skildi liðin að. Er þetta sú fyrsta sem ungstirnið gerir á sínum feril í NBA deildinni, en hana má sjá hér fyrir neðan.

Atkvæðamestur fyrir heimamenn í leiknum var bakvörðurinn Jerryd Bayless með 19 stig, 7 fráköst og 12 stoðsendingar. Fyrir Grizzlies var það leikstjórnandinn Mike Conley sem dróg vagninn með 26 stigum, 5 fráköstum og 8 stoðsendingum.

https://www.youtube.com/watch?v=uigSQwQYk9s

Staðan í deildinni

Úrslit næturinnar:

Charlotte Hornets 94 – 126 Boston Celtics

Chicago Bulls 105 – 89 Miami Heat

Dallas Mavericks 114 – 90 New York Knicks

Indiana Pacers 89 – 107 Washington Wizards

Memphis Grizzlies 97 – 99 Minnesota Timberwolves

Denver Nuggets 105 – 99 New Orleans Pelicans

Atlanta Hawks 113 – 135 Sacramento Kings

Utah Jazz 105 – 132 Portland Trail Blazers

Fréttir
- Auglýsing -