Íslenska karlalandsliðið lagði Litháen í Laugardalshöllinni í kvöld í þriðja leik sínum í undankeppni HM 2027, 86-85.
Stigahæstir í liði Íslands voru Elvar Már Friðriksson með 34 stig og Tryggvi Snær Hlinason með 14 stig.
Að þessari viðureign lokinni halda bæði lið til Litháen. Þar mætast þau að nýju í seinni leik þessa landsleikjaglugga mánudaginn 2. mars.
Frekari umfjöllun og viðtöl eru væntanleg.
Myndasafn (Gunnar Jónatans)





