Tveir leikir fóru fram í 8-liða úrslitum í Poweradebikarkeppni kvenna. Njarðvíkingar tóku á móti ríkjandi bikarmeisturum Hauka í Ljónagryfjunni og í Borgarnesi mættust Skallagrímur og KR.
Njarðvík 70-68 Haukar
Anna María Ævarsdóttir gerði fjögur síðustu stig Njarðvíkinga á lokasprettinum o galls 8 stig í leiknum en stigahæst hjá Njarðvík var Shayla Fields með 32 stig. Hjá Haukum var Kathleen Snodgrass með 23 stig.
Skallagrímur 62-98 KR
Charmaine Clark gerði 20 stig og tók 9 fráköst hjá Skallagrím en hjá KR var Margrét Kara Sturludóttir með 27 stig og 8 stolna bolta.




