spot_img
HomeNeðri deildir1. deild kvennaÚrslit lokaumferðar fyrstu deildarinnar - Ljóst hvaða lið fara í úrslitakeppnina

Úrslit lokaumferðar fyrstu deildarinnar – Ljóst hvaða lið fara í úrslitakeppnina

Lokaumferð fyrstu deildar kvenna fór fram í kvöld með fjórum leikjum.

Hamar/Þór tryggði sig beint upp í Subway deildina með sigri gegn Ármanni í Laugardalshöll, Aþena hafði betur gegn KR í Austurbergi, Tindastóll vann ungmennalið Keflavíkur í Síkinu og í Umhyggjuhöllinni hafði ÍR betur gegn ungmennaliði Stjörnunnar.

Það verða því KR, Tindastóll og Aþena sem fara í úrslitakeppni fyrstu deildarinnar ásamt liðinu úr 9. sæti Subway deildarinnar, Snæfell.

Tölfræði leikja

Staðan í deildinni

Úrslit kvöldsins

Fyrsta deild kvenna

Stjarnan U 83 – 91 ÍR

Aþena 61 – 57 KR

Tindastóll 81 – 43 Keflavík U

Ármann 72 – 82 Hamar/Þór

Fréttir
- Auglýsing -