Fyrsta deild karla kláraðist í kvöld með fjórum leikjum.
Sindri lagði Skallagrím á Höfn í Hornafirði, Selfoss lagði Álftanes, Haukar höfðu betur gegn Hetti og í Dalhúsum bar Fjölnir sigurorð af ÍA.
Eins og ljóst var fyrir kvöldið þá verða það Haukar sem fara beint upp.
Í undanúrslitum munu svo mætast Höttur og Fjölnir annarsvegar og Sindri og Álftanes hinsvegar.
Lokastaðan:
1 Haukar
2 Höttur
3 Sindri
4 Álftanes
5 Fjölnir
6 Selfoss
7 Skallagrímur
8 Hrunamenn
9 Hamar
10 ÍA
Leikir dagsins
Fyrsta deild karla
Sindri 106 – 93 Skallagrímur
Selfoss 107 – 85 Álftanes
Haukar 86 – 82 Höttur
Fjölnir 107 – 90 ÍA