spot_img
HomeFréttirÚrslit: Lakers tryggðu Bulls sinn áttunda tapleik í röð - LeBron við...

Úrslit: Lakers tryggðu Bulls sinn áttunda tapleik í röð – LeBron við það að koma til baka

Sex leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt.

Í Staples höllinni í Los Angeles lögðu heimamenn í Lakers lið Chicago Bulls með 107 stigum gegn 100. Líkt og tölurnar gefa til kynna var leikurinn nokkuð jafn og þrátt fyrir að Bulls hafi tapað sjö leikjum í röð fyrir leik næturinnar, áttu þeir góðan möguleika á að stela sigri.

Lið Lakers hefur verið án LeBron James síðustu 11 leiki vegna meiðsla í nára, eða allt frá því í jóladagssigri liðsins á meisturum Golden State Warriors. Samkvæmt heimildum er þó talið líklegt að hann sé að verða klár á nýjan leik. Verður endurmetinn á miðvikudaginn og mögulega með liðinu á fimmtudag gegn Oklahoma City Thunder.

Atkvæðamestur fyrir Lakers í leik næturinnar var leikstjórnandinn Lonzo Ball, en hann skoraði 19 stig, tók 8 fráköst og gaf 6 stoðsendingar. Fyrir Bulls var það sá finnski sem dróg vagninn, Lauri Markkanen með 17 stig og 3 fráköst.

https://www.youtube.com/watch?v=P_y5azrZnPs

Staðan í deildinni

Úrslit næturinnar:

Phoenix Suns 97 – 131 Indiana Pacers

Minnesota Timberwolves 107 – 149 Philadelphia 76ers

Oklahoma City Thunder 126 – 142 Atlanta Hawks

Miami Heat 86 – 124 Milwaukee Bucks

Golden State Warriors 142 – 111 Denver Nuggets

Chicago Bulls 100 – 107 Los Angeles Lakers

Fréttir
- Auglýsing -