HomeFréttirÚrslit kvöldsins: Valur burstaði Keflavík og Snæfell vann í Vesturbænum

Úrslit kvöldsins: Valur burstaði Keflavík og Snæfell vann í Vesturbænum

Heil umferð fór fram í Iceland Express deild kvenna í kvöld. Njarðvík minnkaði forskot Keflavíkur niður í tvö stig á toppi deildarinnar, Snæfell vann mikilvægan sigur í DHL-Höllinni, Keflavík fékk skell að Hlíðarenda og Fjölnir gerði góða ferð í Schenkerhöllina.
Úrslit kvöldsins:
 
Haukar 67-68 Fjölnir
Brittney Jones gerði 25 stig, tók 7 fráköst og gaf 4 stoðsendingar í sigurliði Fjölnis. Katina Mandylaris bætti við 10 stigum og 8 fráköstum. Hjá Haukum var Jence Ann Rhoads með 31 stig, 9 fráköst og 5 stoðsendingar og þær Íris Sverrisdóttir og Margrét Rósa Hálfdánardóttir bættu báðar við 10 stigum.
 
Valur 88-53 Keflavík
Melissa Leichlitner gerði 26 stig í liði Vals og Kristrún Sigurjónsdóttir bætti við 15 stigum, 6 fráköstum og 4 stoðsendingum. Hjá Keflvíkingum var Pálína María Gunnlaugsdóttir stigahæst með 21 stig og 7 fráköst og Jaleesa Butler bætti við 11 stigum og 15 fráköstum.
 
Hamar 83-84 Njarðvík
Shanae Baker-Brice var atkvæðamest í Njarðvíkurliðinu með 33 stig, 12 fráköst og 2 stoðsendingar. Lele Hardy bætti við 28 stigum, 17 fráköstum og 5 stoðsendingum. Katherine Graham fór mikinn í liði Hamars með 34 stig, 10 fráköst og 9 stoðsendingar og Samantha Murphy bætti við 29 stigum, 6 fráköstum og 3 stoðsendingum.
 
KR 82-86 Snæfell
Jordan gerði 31 stig í liði Snæfells og Kieraah Marlow bætti við 18. Hjá KR var Erica Prossier með 31 stig og Margrét Kara Sturludóttir bætti við 21. KR setti niður mikilvægan þrist þegar sekúnda var til leiksloka og minnkaði muninn í fjögur stig og náði þar með að hrifsa til sín innbyrðisviðureign liðanna.
 
Nánar síðar….
 
  
Fréttir
- Auglýsing -