Fjórir leikir voru á dagskrá í Iceland Express-deild kvenna í kvöld þegar liðin hófu leik í A og B riðlum. Heimaliðin unnu í öllum leikjunum en stærsti sigurinn var í Hveragerði þar sem Hamar vann Hauka með níu stigum.
Úrslit kvöldsins:
Hamar-Haukar 71-62
Snæfell-Fjölnir 76-72
Keflavík-KR 79-75
Njarðvík-Grindavík 70-65
Mynd: Keflvíkingar unnu flottan sigur á KR í kvöld.




