Fjórir leikir fóru fram í fyrstu deild karla í kvöld.
Selfoss lagði Hrunamenn á Flúðum, ÍA hafði betur gegn Þór á Akranesi, Fjölnir vann Ármann í framlengdum leik í Dalhúsum og Skallagrímur hafði betur gegn Sindra í spennuleik á Höfn.
Úrslit kvöldsins
Fyrsta deild karla
Sindri 77 – 80 Skallagrímur
Fjölnir 97 – 93 Ármann
Hrunamenn 97 – 102 Selfoss
ÍA 102 – 78 Þór Akureyri