Annarri umferð Bónus deildar kvenna lauk í kvöld með tveimur leikjum.
Nýliðar Tindastóls fóru á kostum í Dalhúsum og unnu öruggan stórsigur gegn Fjölni, 101–67. Á sama tíma var boðið upp á mikla spennu í Suðurnesjaslagnum í IceMar-höllinni, þar sem Njarðvík hafði betur gegn nágrönnum sínum í Keflavík með fjögurra stiga mun, 83–79.




