Þrír leikir fóru fram í Lengjubikar kvenna í kvöld þar sem nýja parketið í Hveragerði var vígt undir sinn fyrsta körfuboltaleik. Hamarskonur máttu, þrátt fyrir gleðiefnið sem nýja parketið er, sætta sig við skell á heimavelli gegn Valskonum.
Úrslit kvöldsins:
Njarðvík 57-68 KR
Sara Dögg Margeirsdóttir var stigahæst í Njarðvíkurliðinu með 17 stig og 4 fráköst en hjá KR var Helga Einarsdótti rmeð tröllatvennu, 21 stig og 15 fráköst.
Fjölnir 62-92 Snæfell
Hin öfluga Kieraah Marlow gerði 17 stig, tók 18 fráköst og gaf 7 stoðsendingar í sigurliði Snæfells en hjá Fjölni var Porsha Porter með 26 stig, 3 fráköst og 3 stoðsendingar.
Hamar 59-93 Valur
Marín Laufey Davíðsdóttir gerði 11 stig og tók 9 fráköst í liði Hamars en hjá Valskonum var Guðbjörg Sverrisdóttir með 23 stig, 13 fráköst og 4 stoðsendingar.
Mynd/ [email protected] – Kunnugleg sjón? Varnarmaskínan Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir í þeirri stellingum þar sem við þekkjum hana best.






