Síðasta umferð Dominosdeildar karla var leikin í kvöld og fóru leikar þannig að Njarðvíkingar sigruðu Stjörnumenn í Ásgarði, 61:84. ÍR lokaði tímabilinu með stæl og sigruðu Þór Þorlákshöfn 95:85. KR sigruðu Hauka 74:86 á útivelli. Grindvíkingar sigruðu Skallagrím 86:70, Valsmenn sigruðu botnslaginn gegn KFÍ 94:84 og svo í hörku rimmu voru það Keflvíkingar sem sóttu sigur í Stykkishólmi gegn Snæfell 84:89.
Liðin sem mætast því í úrslitakeppninni eru því þessi.
KR – Snæfell
Keflavík – Stjarnan
Grindavík – Þór Þ.
Njarðvík – Haukar
KFÍ og Valur koma til með að leika í 1. deild að ári eftir fall úr deildinni.



