HomeFréttirÚrslit: Keflavík jók muninn í fjögur stig á ný - þriðji Valssigurinn

Úrslit: Keflavík jók muninn í fjögur stig á ný – þriðji Valssigurinn

Tveir leikir fóru fram í Iceland Express deild kvenna í kvöld þegar 25. umferð deildarinnar lauk. Þá eru þrjár umferðir eftir, sex stig í pottinum og allt á suðupunkti hvert sem litið er í deildinni. Keflavík tók reyndar risavaxið skref í kvöld í átt að deildarmeistaratitlinum með sigri á Njarðvík og Valur vann sinn þriðja deildarleik í röð og heldur áfram baráttu sinni fyrir sæti í úrslitakeppninni. Hrund Jóhannsdóttir gerði sigurstig Keflavíkur gegn Njarðvík í kvöld þegar 24 sekúndur voru til leiksloka.
Úrslit kvöldsins:
 
Valur-Haukar 74-59 (23-16, 20-7, 16-26, 15-10)
 
Valur: Guðbjörg Sverrisdóttir 25/8 fráköst/3 varin skot, Lacey Katrice Simpson 14/21 fráköst/6 stolnir/8 varin skot, Melissa Leichlitner 10, María Ben Erlingsdóttir 9, Kristrún Sigurjónsdóttir 8/4 fráköst, Signý Hermannsdóttir 5/3 varin skot, Hallveig Jónsdóttir 3, Þórunn Bjarnadóttir 0/7 fráköst, María Björnsdóttir 0, Margrét Ósk Einarsdóttir 0, Ragnheiður Benónísdóttir 0, Unnur Lára Ásgeirsdóttir 0.
 
Haukar: Hope Elam 20/11 fráköst/4 varin skot, Jence Ann Rhoads 15/10 fráköst/7 stoðsendingar/5 stolnir, Guðrún Ósk Ámundardóttir 11/6 fráköst/5 stolnir, Auður Íris Ólafsdóttir 8, Íris Sverrisdóttir 3/8 fráköst, Margrét Rósa Hálfdanardóttir 2, Sólrún Inga Gísladóttir 0, Sara Pálmadóttir 0, María Lind Sigurðardóttir 0, Kristín Fjóla Reynisdóttir 0, Inga Sif Sigfúsdóttir 0, Ína Salóme Sturludóttir 0.
 
 
Keflavík-Njarðvík 68-66 (9-21, 24-10, 15-18, 20-17)
 
Keflavík: Eboni Monique Mangum 21/4 fráköst/9 stoðsendingar, Pálína Gunnlaugsdóttir 17/7 stolnir, Jaleesa Butler 8/15 fráköst/3 varin skot, Hrund Jóhannsdóttir 6, Lovísa Falsdóttir 5, Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir 5/8 fráköst, Sara Rún Hinriksdóttir 4/5 fráköst, Helga Hallgrímsdóttir 2/5 fráköst, Telma Lind Ásgeirsdóttir 0, Soffía Rún Skúladóttir 0, Sandra Lind Þrastardóttir 0, Katrín Fríða Jóhannsdóttir 0.
 
Njarðvík: Petrúnella Skúladóttir 22/4 fráköst, Lele Hardy 19/22 fráköst/5 stoðsendingar, Shanae Baker-Brice 15/9 fráköst/6 stoðsendingar, Salbjörg Sævarsdóttir 6/9 fráköst, Ólöf Helga Pálsdóttir 2, Harpa Hallgrímsdóttir 2, Sara Dögg Margeirsdóttir 0, Ína María Einarsdóttir 0, Eyrún Líf Sigurðardóttir 0, Erna Hákonardóttir 0, Andrea Björt Ólafsdóttir 0, Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir 0.
Fréttir
- Auglýsing -