Fjöldi leikja var á dagskránni í kvöld en Keflavíkurkonur tryggðu sér sæti í úrslitaleiknum í Poweradebikarkeppni kvenna með naumum 69-72 sigri á Njarðvík í Ljónagryfjunni. Á morgun ræðst svo hvort KR eða Hamar mæta Keflavík í sjálfum bikarúrslitaleiknum í Laugardalshöll. Þá tryggði Þór Þorlákshöfn sér sæti í Iceland Express deild karla á næstu leiktíð með öruggum sigri á Val í Þorlákshöfn. Þórsarar hafa nú unnið 14 leiki í röð og 8 stig skilja nú að Þór úr Þorlákshöfn og Þór frá Akureyri þegar norðanmenn eiga aðeins þrjá deildarleiki eftir.
Njarðvík 69-72 Keflavík
Shayla Fields átti síðasta skot leiksins sem gat komið Njarðvíkingum í framlengingu en það geigaði og Keflavík fagnaði sigri. Bryndís Guðmundsdóttir fór mikinn í liði Keflavíkur með 22 stig, 9 fráköst og 2 stoðsendingar. Hjá Njarðvík var Shayla Fields með 22 stig, 3 fráköst og 7 stoðsendingar.
Úrslit í 1. deild karla
FSu 80-100 Höttur
(upplýsingar frá textavarpinu – endilega sendið stigahæstu menn á [email protected] )
Skallagrímur 87-78 Þór Akureyri
Darrell Flake fór mikinn í liði Skallagríms með 37 stig, 14 fráköst og 4 stoðsendingar. Hjá Þórsurum var Óðinn Ásgeirsson með 22 stig og 13 fráköst.
Ármann 71-82 Breiðablik
Þorsteinn Gunnlaugsson gerði 20 stig og tók 15 fráköst í liði Blika en hjá Ármenningum var Sverrir Kári Karlsson með 19 stig.
Þór Þorlákshöfn 99-79 Valur
Eric Palm gerði 33 stig og tók 9 fráköst í liði Þórs en Calvin Wooten var með 27 stig hjá Valsmönnum.
Nánar síðar…





