14:00
{mosimage}
ÍBV er með gott minniboltalið. Hér stöðvar ágætur Stjörnustrákur peyjann með smá handboltavörn – myndin er tekin í annarri umferðinni.
Um helgina verða úrslit í minnibolta drengja 11 ára og yngri. Mótið verður í DHL-höllinni í Vesturbænum og munu fimm lið mæta til leiks (ÍBV, UMFG, KR, Haukar og Stjarnan).
Í vetur var leikið í fimm riðlum og mættu 24 lið til leiks. Keppnin í a-riðli hefur verið jöfn í vetur og hafa liðin skiptst á að vinna hvert annað og að gera jafntefli. Hér á eftir má sjá hvernig liðunum hefur gengið í vetur:
KR er með 9 sigra, 2 jafntefli og einn ósigur
Grindavík er 8 sigra, 2 jafntefli og 2 ósigra
ÍBV er með 5 sigra og 3 töp
Stjarnan er með 4 sigra og 8 töp
Haukar eru með 2 sigra og 6 töp
Fjölnir og Þór (Þorlákshöfn) léku eina umferð í a-riðli án þess að landa sigri
Haukar eru núverandi Íslandsmeistarar í þessum árgangi. Sá sem þetta ritar telur að öll liðin sem leika í úrslitunum eigi góða möguleika á því að landa titli á sunnudaginn. Niðurröðun mótsins:
| Lau. 12.apr.2008 | 13.00 | DHL-Höllin | Grindavík – Haukar | ||
| Lau. 12.apr.2008 | 14.00 | DHL-Höllin | KR – Stjarnan | ||
| Lau. 12.apr.2008 | 15.00 | DHL-Höllin | ÍBV – Haukar | ||
| Lau. 12.apr.2008 | 16.00 | DHL-Höllin | Grindavík – Stjarnan | ||
| Lau. 12.apr.2008 | 17.00 | DHL-Höllin | KR – ÍBV | ||
| Sun. 13.apr.2008 | 9.00 | DHL-Höllin | Stjarnan – Haukar | ||
| Sun. 13.apr.2008 | 10.00 | DHL-Höllin | Grindavík – ÍBV | ||
| Sun. 13.apr.2008 | 11.00 | DHL-Höllin | KR – Haukar | ||
| Sun. 13.apr.2008 | 12.00 | DHL-Höllin | ÍBV – Stjarnan | ||
| Sun. 13.apr.2008 | 13.00 | DHL-Höllin | KR – Grindavík | ||
Mynd tekin af heimasíðu ÍBV



