Höttur Egilsstöðum og Ármann mættust í mikilvægum leik á Egilsstöðum í kvöld þar sem Hattarmenn kvittuðu fyrir tapið gegn Ármenningum í fyrri umferðinni. Með sigrinum náði Höttur einnig innbyrðisviðureigninni á sitt vald og eru núna búnir að bæja sér frá botni 1. deildar um hríð.
Lokatölur á Egilsstöðum í kvöld voru 74-68 Hetti í vil þar sem Daniel Terrell og Viðar Örn Hafsteinsson voru báðir með 25 stig í liði Hattar. Hjá Ármenningum var Egill Vignisson með 23 stig.
Höttur er nú í 7. sæti deildarinnar með 6 stig en Ármann á botninum með 4.
Mynd/ Viggó stýrði Hetti til sigurs fyrir austan í kvöld.




