spot_img
HomeFréttirÚrslit: Hólmarar einir á toppinn: KR skellti Keflavík

Úrslit: Hólmarar einir á toppinn: KR skellti Keflavík

 
Heil umferð fór fram í Iceland Express deild karla í kvöld þar sem Hólmarar komust einir á toppinn með sigri á Tindastól og stórleikur kvöldsins varð að einstefnu í Vesturbænum þegar KR-ingar rúlluðu yfir Keflavík í síðari hálfleik .
Úrslit kvöldsins:

Stjarnan 83-75 KFÍ

Justin Shouse með 21 stig, 6 fráköst og 9 stoðsendingar hjá Stjörnunni. Hjá KFÍ var Darco Milosevic með 18 stig og 4 fráköst.
 
KR 99-85 Keflavík
Marcus Walker gerði 27 stig hjá KR, hann tók einnig 7 fráköst og gaf 6 stoðsendingar. Hjá Keflavík var Thomas Sanders með 24 stig.
 
ÍR 92-69 Grindavík
Nemanja Sovic með 26 stig og 7 fráköst hjá ÍR en í liði Grindavíkur var nýji leikmaðurinn Kevin Sims með 17 stig.
 
Hamar 77-78 Njarðvík
Jonathan Moore gerði 19 stig og tók 7 fráköst í liði Njarðvíkinga en hjá Hamri var Devin Sweetney með 26 stig og 9 fráköst.
 
Haukar 91-75 Fjölnir
Semaj Inge fór mikinn í liði Hauka með 30 stig og 6 fráköst en hjá Fjölni var Brandon Springer með 18 stig og 11 fráköst.
 
Snæfell 99-85 Tindastóll
Sean Burton átti dúndrandi leik hjá Snæfell í kvöld með 35 stig, 7 fráköst og 7 stoðsendingar. Hjá Stólunum var Dragoljub Kitanovic með 30 stig og 9 fráköst.
 
Nánar síðar…
 
Mynd/ Úr safni: Ingi og Hólmarar gefa ekki toppsætið eftir.
 
Fréttir
- Auglýsing -