Fyrstu undanúrslitaviðureign Keflavíkur og Hauka í Iceland Express deild kvenna var að ljúka þar sem Haukar tóku 0-1 forystu með sigri í Toyota-höllinni. Hin magnaða Tierney Jenkins splæsti í enn eina tröllatvennuna og ætlar greinilega að reynast Keflvíkingum sem öðrum ill viðureignar. Lokatölur í leiknum voru 54-63 Haukum í vil.
Staðan í einvíginu: Keflavík 0-1 Haukar
Liðin mætast í leik nr. 2 á mánudagskvöld í Schenkerhöllinni í Hafnarfirði
Tierney Jenkins gerði 27 stig og tók 20 fráköst í liði Hauka og Jence Ann Rhoads bætti við 14 stigum, 9 fráköstum og 5 stoðsendingum. Hjá Keflavík var Jaleesa Butler með 23 stig og 12 fráköst og Pálína María Gunnlaugsdóttir bætti við 11 stigum og 5 fráköstum.




