Það verða Grindavík og KR sem leika til úrslita í Poweradebikarkeppni karla þetta árið en Grindavík lagði í kvöld Hauka í undanúrslitum að Ásvöllum í Hafnarfirði. Lokatölur voru 70-82 Grindavík í vil. Grindvíkingar voru einnig í Höllinni í fyrra þegar liðið lá í spennuslag gegn Snæfell.
Kevin Sims var stigahæstur Grindvíkinga með 25 stig, 4 fráköst og 5 stoðsendingar. Hjá Haukum var Semaj Inge með 26 stig og 9 fráköst.
Nánar um leikinn síðar…
Mynd/ [email protected] – Sims var stigahæstur Grindvíkinga í kvöld





