Þrír leikir fóru fram í Reykjanesmóti karla í kvöld þar sem Íslandsmeistarar Grindavíkur lögðu bikarmeistara Keflavíkur, Njarðvík fékk skell í Ásgarði og Haukar lögðu Blika í Schenkerhöllinni.
Grindavík 93-87 Keflavík
Það var vel mætt í Röstina í kvöld á þennan Suðurnesjaslag milli Íslandsmeistaranna úr Grindavík og bikarmeistara Keflavíkur í Rekjanesmótinu. Bæði lið voru taplaus fyrir leikinn og byrjuðu Íslandsmeistararnir mjög vel með sterkum fyrsta leikhluta og voru með forystu 24-11 en það var eins og nýtt lið hefði komið inn í annan leikhluta hjá Keflavík og unnu þeir hann 30-13! Staðan í hálfleik var 37-41. Í seinni hálfleik var meira jafnræði með liðunum en í 4.leikhluta silgdu Íslandsmeistararnir þessu í land með flottum leik. Stigahæðstir hjá Grindavík voru AAron Broussard 28stig og 9 fráköst,Sammy 22 stig og Siggi Þorsteins 14 stig en hjá Keflavík var Kevin Glittner með 26stig og Darrel með 21stig, en Ragnar kom flottur inn með 13 stig.

Stjarnan 101-84 Njarðvík
Justin Shouse daðraði við þrennuna með 24 stig, 8 fráköst og 10 stoðsendingar. Sæmundur Valdimarsson bætti svo við 20 stigum og 5 fráköstum. Í liði Njarðvíkinga var Jeron Belin með 21 stig og 9 fráköst.
Haukar 80-62 Breiðablik
Heimamenn höfðu betur 80-62 er Haukar og Breiðablik mættust í Schenker-höllinni í gærkvöld. Leikurinn fór nokkuð jafnt af stað á meðan liðin voru að þreifa fyrir sér en í þriðja leikhluta voru það Haukar sem réðu lögum og lofum á vellinum.
Liðin mætast í 1. deild karla og hafa bæði það á stefnuskránni að fara upp í efstu deild á ný. Það var því ákveðin spenna fyrir þennan leik að sjá hvernig liðin standa gagnvart hvort öðru og alveg ljóst að sú spennan var einnig í leikmönnum.
Aaryon Williams var stigahæstur Hauka með 22 stig og 7 fráköst og honum næstur var Helgi Björn Einarsson með 20 stig og 9 fráköst.
Hjá Breiðabliki var Hraunar Karl Guðmundsson atkvæðamestur með 16 stig og Þorsteinn Gunnlaugsson gerði 14 stig og tók 16 fráköst.
Efri mynd/ Sammy Zeglinski gerði 22 stig fyrir Grindavík í kvöld.
Neðri mynd/ Sigmar Logi Björnsson sækir að körfu Hauka í kvöld.