Einn leikur fór fram í fyrstu deild kvenna í dag.
KR lagði Tindastól með 9 stigum á Meistaravöllum, 80-71.
Atkvæðamest fyrir KR í leiknum var Hulda Ósk Bergsteinsdóttir með 27 stig og 5 fráköst. Fyrir Tindastól var Madison Anne Sutton atkvæðamest með 24 stig og 17 fráköst.
Eftir leikinn hefur KR unnið tvo leiki og tapað tveimur á meðan að Tindastóll hefur unnið einn og tapað þremur það sem af er tímabili.
Leikur dagsins
Fyrsta deild kvenna
KR 80 – 71 Tindastóll