HomeFréttirÚrslit dagsins: Öruggt hjá Snæfell en Keflavík slapp með skrekkinn

Úrslit dagsins: Öruggt hjá Snæfell en Keflavík slapp með skrekkinn

Í dag og í kvöld fóru fram tveir leikir, annar í Lengjubikar kvenna þar sem Snæfell vann öruggan sigur á Hamri og hinn í Reykjanesmóti karla þar sem Keflvíkingar lentu í miklu basli með 1. deildarlið Hauka en unnu þó eftir framlengingu.
Úrslit:
 
Lengjubikar kvenna
 
Snæfell-Hamar 85-51 (26-15, 25-9, 24-13, 10-14)
 
Snæfell: Hildur Sigurdardottir 19/4 fráköst/10 stoðsendingar/3 varin skot, Alda Leif Jónsdóttir 16/6 fráköst/6 stoðsendingar, Hildur Björg Kjartansdóttir 13/11 fráköst, Berglind Gunnarsdóttir 12, Kieraah Marlow 10/5 fráköst, Helga Hjördís Björgvinsdóttir 7/9 fráköst, Aníta Sæþórsdóttir 3/6 fráköst/5 stoðsendingar, Rósa Indriðadóttir 3, Rebekka Rán Karlsdóttir 2, Silja Katrín Davíðsdóttir 0.
 
Hamar: Íris Ásgeirsdóttir 13, Marín Laufey Davíðsdóttir 12/9 fráköst/5 stoðsendingar, Bjarney Sif Ægisdóttir 6, Jenný Harðardóttir 5, Álfhildur Þorsteinsdóttir 4, Dagný Lísa Davíðsdóttir 4/5 fráköst, Helga Vala Ingvarsdóttir 3, Bylgja Sif Jónsdóttir 2, Katrín Eik Össurardóttir 2, Sóley Guðgeirsdóttir 0/5 fráköst, Freyja Fanndal Sigurjónsdóttir 0, Rakel Lind Úlfhéðinsdóttir 0.
 
Dómarar: Einar Þór Skarphéðinsson, Davíð Tómas Tómasson, Ingvar Jóhannesson
 
Reykjanesmót karla
 
Haukar 103-109 Keflavík
Arryon Williams gerði 32 stig í liði Hauka og Haukur Óskarsosn bætti við 29. Hjá Keflavík var Darrel Lewis með 38 stig, Kevin Glitner 25 og Valur Orri Valsson gerði 10 stig, tók 5 fráköst og gaf 11 stoðsendingar.
 
Mynd/ Arryon Williams sækir að körfu Keflavíkur í Schenkerhöllinni í Hafnarfirði.  
Fréttir
- Auglýsing -