Athyglisverð úrslit litu dagsins ljós í kvöld þegar botnlið KFÍ batt enda á tíu leikja taphrinu sína í Iceland Express deild karla. Meistarar Snæfells mættu í heimsókn í Jakann en fyrir leikinn munaði 20 stigum á liðunum í deildinni. Þá náðu KR og Keflavík sér í tvö góð stig og þéttu pakkanna á toppnum til muna.
Fjölnir 93-101 KR
Marcus Walker var frábær í liði KR í kvöld. Kappinn setti 24 stig og tók 6 fráköst. Þá var Pavel Ermolinskij með 23 stig, 7 fráköst og 6 stoðsendingar. Hjá Fjölni var Brandon Springer með 32 stig og 7 fráköst og þrír voru jafnir á eftir honum með 11 stig en það voru þeir Magni Hafsteinsson, Jón Sverrisson og Arnþór Freyr Guðmundsson.
KFÍ 89-76 Snæfell
Craig Schoen fór mikinn hjá KFÍ í kvöld með 31 stig, 8 fráköst og 7 stoðsendingar þegar Ísfirðingar brutu á bak aftur tíu leikja taphrinu sína í deildinni. Með sigrinum komst KFÍ upp í 6 stig og er enn í bullandi fallhættu. Hjá Snæfell, sem léku enn án Ryans Amoroso, var Jón Ólafur Jónsson með 23 stig og 11 fráköst.
Keflavík 94-77 Hamar
Devin Sweetney lék sinn fyrsta leik fyrir Hamar í kvöld og var stigahæstur í liði gestanna með 24 stig og 7 fráköst en það kom ekki að sök því Keflvíkingar eru í fantaformi um þessar mundir og hafa nú unnið fjóra deildarleiki í röð og sex heimaleiki í röð.
Úrslit í 1. deild karla
Breiðablik 67-62 Skallagrímur
Skallarnir léku án Darrels Flake og var Mateuz Zowa stigahæstur í liði gestanna með 14 stig og 14 fráköst. Hjá Blikum var Nick Brady með 14 stig og 4 fráköst. Með sigrinum í kvöld náðu Blikar að jafna Skallana að stigum og hafa bæði lið því 16 stig og Blikar búnir að vinna fimm deildarleiki í röð.
Valur 107-71 Leiknir




